TRAUSTI fasteignasala
TRAUSTI fasteignasala
Trausti fasteignasala hefur hafið samstarf við tvær af vönduðustu fasteignasölum Portúgal. Við bjóðum nú upp á mikið úrval eigna. Eins bjóðum við upp á 7 daga skoðunarferðir um Algarvesvæðið.
Hafið samband við Peter, Sofiu eða Kristján og við finnum þína eign í Portúgal.
Sofia
Sofia Baptista
[email protected]
Sími og WhatsApp: +351 963003022
Sofia Baptista, er fædd og uppalin í Lissabon og þekkir borgina eins og lófann á sér.
Sofia er reyndur fasteignasali og hefur sérhæft sig í að aðstoða erlenda kaupendur við fasteignakaup í Portúgal, þá helst frá USA og Norður Evrópu. Hún ferðast reglulega til USA og
Norður Evrópu og heldur fyrirlestra um kaup erlendra aðila í Portúgal undir yfirskriftinni
„Living Portugal“
Sofia talar mjög góða ensku.
Kristján
Kristján Baldursson
[email protected]
Sími: 8673040
Kristján hefur búið í Portúgal, þekkir landið vel af eigin raun og talar portugölsku. Fyrir utan að
selja Fasteignir á Trausta fasteignasölu finnst honum ekkert betra en að borða góða “bifana” á
góðum stað í Lissabon. Kristján er eldheitur stuðningsmaður Benfica og fer iðulega á Estadio da
Luz að horfa á leiki.
Hann hefur starfað við fasteignasölu frá árinu 2007 og hefur frá árinu 2012 rekið Trausta
fasteignasölu. Kristján er reynslumikill í fasteignasölu og í lögmennsku í málum á sviði
fasteignaréttar.
Peter
Peter Reuterkloo
[email protected]
Sími: +4670873 8600 / +351919486900
Peter er eigandi og rekstraraðili SkandiaMäklarna Portúgal.
Hann hefur í meira en 15 ár aðstoðað Svía, Norðmenn, Finna og nú Íslendinga við að
kaupa eignir í Portúgal. Hann hefur tekið þátt í yfir 80 fyrirlestrum í Skandinavíu og
hefur stjórnað yfir 200 skoðunarferðum erlendra aðila til Portúgal í kauphugleiðingum.
Peter talar mjög góða ensku
Veðrið í Portúgal er almennt þægilegt. Sumrin eru heit og vetur mildir. Hitastigið er ekki óbærilegt þó að sumrin geta verið heit sérstaklega í ágúst.
Sumarkvöldin geta þó orðið svöl og því getur verið gott að hafa meðferðis léttan jakka eða þunna peysu.
Áhrif hnattrænnar hlýnunar eru mun minni heldur en í nágrannalöndum þ.e. Spáni, Ítalíu og Grikklandi þar sem hitinn getur orðið óbærilegur ásamt neikvæðum áhrifum sem því fylgja eins og t.d. sinubruni og skógareldar. Portúgal kemur því betur út veðurfarslega en önnur lönd suður Evrópu. Þar skiptir miklu lega landsins að sjó og hafgola.
Sjá meira á : Tripsavy · The Times · CN Traveler
Ímyndaðu þér að búa í landi þar sem finna má mikla fjölbreytni í landslagi og náttúru. Sandstrendur eins langt og augað eygir, gullnar sléttur og fjöll, heimsborgir og sjávarþorp og þúsund ára arfleifð.
Það er ódýrt að búa í Portúgal, bæði hvað varðar húsnæðis- og matarkostnað. Framfærslukostnaður er lágur og er verðlagið í Portúgal allt að 40% lægra en á Íslandi.
Veðurfar landsins er gott og einkennist af mildum vetrum og hlýjum sumrum. Gott er að geta fundið fyrir áhrifum Miðjarðarhafsins, með heitum, löngum sumrum og stuttum vetrum með lítilli úrkomu.
Portúgal er eitt af þeim Evrópulöndum sem býr yfir hvað mestum fjölbreytileika hvað varðar náttúru. Ósnortið, töfrandi landslag, frá háum fjöllum til víðáttumikilla slétta, gullnar strendur umvafðar fallegum klettum, fallegir árdalir og fjölbreytt dýralíf.
Portúgölsk matargerð einkennist af skemmtilegri blöndu af Atlantshafs- og Miðjarðarhafsmatargerð sem inniheldur sjávarfang, brauð, osta og ólífuolíur. Hvert svæði í Portúgal hefur sína eigin hefðbundnu rétti, þar á meðal ýmsar tegundir af kjöti, sjávarfangi, ferskum fiski, þurrkuðum og söltuðum þorski (bacalhau) og hinum fræga Cozido à Portuguesa (portúgalskur plokkfiskur).
Við gerum ferlið þægilegt og auðvelt fyrir þig.
7 daga skoðunarferð til Algarve. Skipulagðar ferðir fyrir þá sem hafa áhuga á að kaupa húsnæði í Portúgal. - Allt innifalið.
Skattfrelsi á ellilífeyris- og lífeyrissjóðgreiðslur. Lægri skattur af lífeyristekjum.